Sumrin1960-1963 var ég í sveit á Gilsárteigi í Eiðaþinghá og sumrin 1964-1966 á Kagaðarhóli í A-Húnavallasýslu. Nú hef ég skannað inn þær myndir sem ég tók á þessum tíma ásamt myndum sem teknar voru síðar. Albúmið er hér hægra megin á síðunni, en einnig getið þið smellt hér til að skoða.



Yndislega skemmtilegar myndir:D
Þú ert snillingur - meira að segja svolítið myndarlegur snillingur hahaha;)
Posted by: Arna (tengdadóttir þín) | November 16, 2009 at 04:37 AM
Ekkert smá gaman að þessum myndum!! Og þú ekkert smá flottur stóðhestur ríðandi berbakt á stóðhesti. Og Berglind líka. Þið eruð svakaleg. Og svo vil ég líka taka fram að mér líkaði mjög vel við vinnuvélina... ég vildi bara ekki láta einhvern vera að skipta sér af meðan ég stjórnaði henni
Posted by: Guðjón (unnusti tengdadóttur þinnar) | November 16, 2009 at 04:54 AM
Ég veit ekki hvort að þú hefðir ráðið við hana Guðjón minn enda vantaði dráttarhestinn og svo var fallið af henni nokkuð hátt.Ég held bara að Dísa hafi verið að vernda þig við því að falla af vélinni hahaha.
Posted by: Pebs | November 16, 2009 at 12:12 PM
Hvar eru myndirnar frá Vestmannaeyjum 1971?
Posted by: Jens Indriðason | March 28, 2011 at 12:43 PM